Nýjustu fréttir
Hollt í hádeginu sér ekki lengur um skólamat í Hvaleyrarskóla, Setbergsskóla,...
11.11.09
Í ár er ekki boðið upp á pizzu á matseðli, heldur hefur skólunum verið boðið að velja...
Nú er lokið við að skanna fingur flestra barna í skólum í Hafnarfirði....

Nú er skólastarfið komið á fullt eftir vetrarfrí og í vetrarfríinu fóru matráðar á námskeið um mikilvægi þess að rétt hitastig haldist í matvælum, frá framleiðslu til lokaeldunnar. Farið yfir lokaeldunarferlið og matráðum sýnt hvað getur gerst ef rétt hitastiga helst ekki á alla leið. Að loknum fyrirlestri voru góðar umræður og spurningar. Sú sem hélt fyrirlesturinn heitir Guðrún Elísabet Gunnarsdóttir frá rannsóknarstofunni Sýni.

Áfram munum við leggja áherslu á fjölbreyttan mat, ferskt grænmeti og ávexti daglega.  Allar matseðlar eru næringarútreiknaður og farið eftir ráðleggingum Lýðheilsustofnunar um næringu barna og unglinga.