Mataráskrift
Áskrift má hefja hvenær sem er á skólaárinu.
Til að gerast áskrifandi að hádegismat frá Hollt í hádeginu þarf að fylla út þar til gert áskriftareyðublað sem hægt er að nálgast í viðkomandi skóla sem sér um að koma því útfylltu til skila til okkar. Einnig má senda tölvupóst á eline@ss.is en þessar upplýsingar þurfa að koma fram:
-Nafn nemanda
-Kennitala
-Heimilisfang
-Skóli
-Bekkur
-Nafn forráðamanns/greiðanda
-Kennitala
Með hvaða hætti á að greiða áskrift (greiðslukort eða greiðsluseðill) og hvenær óskað er eftir að áskrift hefjist. Ef greiða á með greiðslukorti þurfa upplýsingar um það að fylgja.
Sækja um mataráskrift
Segja upp mataráskrift
Áskriftartímabil
Í ár eru áskriftartímabilin mánuður í senn og miðast við almanaksmánuð.
Fyrsta tímabil er þó frá 24. ágúst til 30. september.
Segja þarf upp áskrift í síðasta lagi 10 dögum fyrir byrjun næsta tímabils.
Greiðslufyrirkomulag
Áskrift er hægt að greiða með greiðslukorti. Einnig er hægt að greiða greiðsluseðla í banka.
Við bendum á að hagkvæmara er að greiða áskriftina með greiðslukorti.
Við vekjum athygli á að ef greiðsluseðlar eru greiddir eftir eindaga eru þeir sendir til innheimtu og jafnframt fellur mataráskrift niður.
Uppsögn/breytingar
Ef segja á upp áskrift er það einnig gert á áskriftareyðublaðinu með sama hætti og þegar óskað er eftir áskrift.
Fyrir þá sem nú þegar fá greiðsluseðla er auðvelt að breyta greiðslufyrirkomulaginu yfir á greiðslukort með því að nálgast eyðublað í viðkomandi skóla sem skilar því útfylltu til okkar. Einnig má senda tölvupóst til eline@ss.is eða hringja í síma 575-6049.
Ef tilkynna þarf breytingar varðandi áskrift er hægt að gera það með því að senda tölvupóst á netfangið eline@ss.is eða hringja í síma 575-6049.
Starfsmaður/símanúmer
Elín Einarsdóttir, deildarstjóri skólamötuneyta, vinnusími 575 6049 og farsími 860-1134. Elín svarar öðrum fyrirspurnum en þeim sem snúa að greiðslum fyrir skólamatinn.