Áskriftartímabil 
Í ár eru áskriftartímabilin mánuður í senn og miðast við almanaksmánuð.
- fyrsta tímabil er þó 24.ágúst til 30. september.
Segja þarf upp áskrift í síðasta lagi 10 dögum fyrir byrjun næsta tímabils.  
Séu einhverjar fyrirspurnir þá vinsamlegast hafið samband við Elínu Einarsdóttur í síma: 860-1134 eða í tölvupósti: 
eline@ss.is

Mataráskrift veturinn 2009-2010
Þeir nemendur sem voru með áskrift á síðasta skólaári og eru skuldlausir þurfa ekki að endurskrá sig. Eingöngu er  um að ræða mataráskrift fyrir alla daga hvers tímabils, ekki er hægt að velja ákveðin vikudag. 

Til að gerast áskrifandi að hádegismat, þarf að fylla út áskriftareyðublað - sem hægt er að nálgast í viðkomandi skóla eða senda tölvupóst á
eline@ss.is, en þær upplýsingar sem þurfa að fylgja eru: 
Nafn nemenda:
Kennitala:
Heimilisfang:
Skóli:
Nafn forráðamanns / greiðanda:
Kennitala
Með hvaða hætti á að greiða áskrift ( greiðslukort eða greiðsluseðill) - við viljum benda á að það er hagkvæmara að borga með greiðslukorti.

Fyrir foreldra barna með óþol / ofnæmi
Hafi börn ofnæmi eða óþol, er mikilvægt að koma með vottorð frá lækni, ekki er heimilt að afgreiða sérfæði fyrir þau börn sem ekki hafa vottorð.