Spurningar frá foreldrum
Er hægt að bjóða nemendum sem ekki borða kjöt valrétt?
Því miður getum við einungis annað því sérfæði sem börnum er nauðsynlegt að fá vegna óþols og ofnæma.
Hvað má vera mikið salt í mat. Þ.e. er til eitthvert hámarksviðmið?
Að því er ég best veit eru ekki til nein gildi hvað varðar saltmagn í matvælaiðnaði.
Vara tekst hinsvegar saltrík ef salt fer yfir 1.25 g í 100 g af matvælum.
Samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar er ekki æskilegt að börn á leikskólaaldri neyti meira enn 3.5 g af salti eða 1,05 g af natríum á dag. Fyrir fullorðna eru ráðleggingarnar 6 g fyrir konur og 7 g fyrir karla.
Hver er munurinn á eftirfarandi bindiefnum og hverskonar bindiefni eru þetta?
E 1441, E 1442, E 450, E 1468, E 451, E 412, E 406 og E 1422 ?
Aukefni (E- efni) eru notuð í matvælaframleiðslu til þess m.a. að auka geymsluþol þeirra og auk þess hafa þau áhrif á bragð, lit, lykt og áferð eins og t.d. sterkjur sem eru notaðar til að þykkja matvæli.
E 1422, E 1441, E 1442 og E 1468 eru umbreytt sterkjusambönd:
Þau hafa yfirleitt svipuð áhrif og þykkingarefni eða bindiefni og kostur þeirra er að þau þola hitabreytingar án þess að missa eiginleikann til að binda vökva. (UST)
E 406 (Agar), E 412 (Gúar Gúmmí)E 450 og E 451(Fosföt) eru bindiefni, ýruefni, þykkingarefni o.fl.
Bindiefni hafa ýmis áhrif á stöðugleika matvæla og útlit þeirra. Þau koma t.d. í veg fyrir að smjörlíki skilji sig og að botnfall verði í kókómjólk. Ýruefni eru notuð þegar blanda þarf saman vatni og fitu eins og við framleiðslu á majonesi og þykkingarefni eru efni sem binda vökva og þykkja þannig vörur eins og sultur, hlaup og marmelaði. (UST)
Hvers vegna notið þið innfluttar kartöflur?
Það er okkar mat að innfluttu kartöflurnar komi betur út bæði gæðalega og verðlega.
Hvers vegna er bindiefni í kartöflum og kartöflubátum?
Samkvæmt okkar innihaldslýsingum er um að ræða sýrustillir (E 509) sem kemur í veg fyrir að kartöflurnar verði brúnar.
Hvers vegna er bindiefni í Bolognese?
Í bolognese er notað E 1441 sem er maíssterkja til þykkingar.
Hvers vegna er litarefni í fiski í raspi?
Litarefnið tilheyrir sjálfsagt raspinum sem eykur á gæðalegt útlit fisksins.