Næringarríkur hádegisverður fyrir nemendur
Rannsóknir hafa sýnt að þau börn sem fá næringarríkan hádegisverð hafa mun betra úthald og ná betri árangri í skóla. 

Við hjá Hollt í hádeginu kappkostum að því að bjóða börnum og unglingum upp á næringarríkar og fjölbreyttar máltíðir ásamt ríkulegum skammti af grænmeti og ávöxtum í takt við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar. Okkar matur er framleiddur undir ströngu gæðaeftirliti en það tryggir næringargildi og öryggi matarins. 


Fræðsludagur Hollt í hádeginu
Nú við upphaf skólaárs var haldinn fræðsludagur fyrir starfsmenn skólamötuneyta Hollt í hádeginu og skólaliða sem koma að vinnu í matsölum þeirra skóla sem við þjónustum.

Námskeiðið var haldið í húsakynnum Fastus í Síðumúla, í ár fengum við Þekkingarmiðlun til að halda fyrirlestur um mikilvægi um framkomu við nemendur sem og samstarfsmenn.